Bílaleiga

FERÐAMÁL >  FLUG | HÓTEL | BÍLALEIGA| PAKKAFERÐIR 

Bilaleiga_2

Ástæða til að fara varlega

Á hverju ári fær Evrópska neytendaaðstoðin (ECC á Íslandi), sem Neytendasamtökin hýsa, fjölmörg mál þar sem upp hafa komið vandamál varðandi samningsskilmála eða önnur atriði er tengjast bílaleigu.

Því er rétt að hvetja neytendur sem hyggjast leigja bílaleigubíla að fara varlega til að forðast óþarfa kostnað og leiðindi. Hér að neðan má finna ýmis góð ráð frá ECC á Íslandi sem gott er að hafa í huga þegar bílaleigubíll er tekinn á leigu.

Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga

  • Athugaðu vel hvað er innifalið í verðtilboði á bílaleigubílnum. Gættu sérstaklega að því hvort öll gjöld og skattar séu innifaldir. Þegar neytendur skoða hagstæðustu verðin á bílaleigubílum á netinu eru uppgefin verð oft miðuð við lágmarksupphæð án trygginga og aukabúnaðar.
  • Athugaðu hvað sá aukabúnaður (barnabílstólar o.s.frv.) sem þú þarft á að halda á meðan leigu stendur kostar.
  • Athugaðu vel hvernig eldsneytismálum er háttað hjá viðkomandi bílaleigu. Hjá sumum bílaleigum, sérstaklega erlendis, er gert ráð fyrir að leigutaki skili bílaleigubílnum án þess að fylla hann af eldsneyti. Leigutaki er þá í raun að tapa peningnum sem hann notar til að kaupa eldsneyti áður en hann skilar.
    • „Collect Full Return Empty Policy“ – Þá er engin endurgreiðsla á því bensíni sem er á bílnum þegar þú skilar honum. Ekki er gert ráð fyrir að bifreiðinni sé skilað með fullum tanki.
    • „Collect Full Return Full Policy“ – Bifreiðinni skal skilað með fullum tanki. Ef tankur er ekki fullur er leigutaki rukkaður fyrir því eldsneyti sem upp á vantar, ásamt áfyllingargjaldi (e. fill up fee).
  • Athugaðu hvaða skilmálar gilda um afpöntun. Það er fátt leiðinlegra en að lenda í því að óvæntar aðstæður leiði til þess að þú þurfir að fresta fríinu og þurfa að auki að greiða fyrir leigu á bílaleigubíl sem aldrei verður notaður.
  • Athugaðu allar takmarkanir á leigusamningnum. Stundum er sett hámark á kílómetrafjölda eða takmarkanir hvað varðar þau lönd sem heimilt er að ferðast til á bílaleigubíl.
  • Ef þú bókaðir bílaleigubílinn á netinu er ráðlegt að hafa meðferðis útprentun af bókuninni.
  • Þegar þú undirritar bílaleigusamning á staðnum skaltu ganga úr skugga um að skilmálar samningsins séu þeir sömu og á bókuninni sem þú hefur þegar gert. Mikilvægt er að fá afrit af samningnum og geyma hann ef eitthvað kemur uppá síðar.
  • Vertu viss um að þú skiljir hvað er innifalið í tryggingunum. Margar bílaleigur bjóða nú þeim sem leigja bíla hér á Íslandi að kaupa sérstaka sand- og öskutryggingu. Yfirleitt falla skemmdir á bifreiðum vegna sand- eða öskustorms ekki undir hinar hefðbundnu tryggingar. Því getur verið ráðlegt fyrir leigjanda að óska eftir slíkum tryggingum, séu þær í boði, ef ætla má að mikið sandfok geti orðið þar sem ætlunin er að aka.
  • Rétt er að kanna hvort þú ert með ferða- eða kortatryggingu sem taka sérstaklega á leigu á bílaleigubíl. Slíkar tryggingar geta gert aðrar tryggingar óþarfar og í sumum tilvikum getur það skemmt fyrir að taka sérstaka tryggingu hjá bílaleigunni þar sem þá falla korta- eða ferðatryggingar niður.
  • Spurðu hver sé stefna fyrirtækisins ef bíllinn bilar eða þú lendir í slysi á bílnum.
  • Skoðaðu bílinn með starfsmanni til að athuga hvort það séu einhverjar skemmdir á honum við móttöku. Séu skemmdir á bílnum skaltu gæta þess að þú fáir skriflega yfirlýsingu, undirritaða af starfsmanni, um að skemmdirnar hafi verið til staðar þegar þú leigðir bílinn.
  • Athugaðu vel á hvernig eldsneyti bíllinn gengur fyrir. Ef sett er bensín á dieselbíl, eða diesel á bensínbíl eru miklar líkur á að bíllin skemmist.
  • Ef bíllinn bilar skaltu hafa samband við bílaleiguna strax og fylgja leiðbeiningum hennar. Ekki fara sjálfur með bílinn á verkstæði án samþykkis bílaleigunnar.
  • Ef þú lendir í slysi á bílnum þá skaltu rita niður nöfn og heimilisföng allra þeirra sem tengdust slysinu. Ef það verða slys á fólki, eða ágreiningur er um sök, þá skaltu hringja á lögregluna og hafa samband við bílaleiguna.
  • Reyndu að skila bílaleigubílnum á opnunartíma bílaleigunnar. Þá hefur þú möguleika á að vera viðstaddur skoðun á bílnum og andmælt ef því er haldið fram að þú hafir valdið skemmdum.
  • Starfsmaður bílaleigunnar ætti að gefa út yfirlýsingu um ástand bílaleigubílsins við skil. Bæði þú og starfsmaðurinn ættuð að undirrita hana. Ráðlegt er að geyma eintakið!
  • Ef þú þarf að skila bílaleigubíl utan opnunartíma bílaleigunnar þá skaltu gæta þess að leggja honum í rétt stæði. Einnig getur verið ráðlegt að taka myndir af ástandi bílsins, þá helst með dagsetningu og kílómetrastöðu, til að sanna að bílnum hafi verið skilað í góðu ásigkomulagi.
  • Á Íslandi eru margar bílaleigur með þann háttinn á að gefa ekki út fullnægjandi yfirlýsingu um gott ástand bílnum fyrr en þrif á henni hafa farið fram. Yfirleitt er þó hægt að bíða á meðan þrifin fara fram og fara svo yfir ástandið með starfsmanni bílaleigunnar.

Leiga á bíl í Evrópu

Ef neytendur lenda í vandræðum með bílaleigu erlendis og hafa reynt sjálfir að komast að samkomulagi við bílaleiguna án árangurs geta þeir leitað til Evrópsku neytendaaðstoðarinnar á Íslandi, sem fær fjölmörg mál sem varða bílaleigu til meðferðar. Evrópska neytendaaðstoðin er hluti af samstarfsneti, ECC-Net, sem starfrækt er í öllum aðildarríkjum EES, og lendi íslenskur neytandi t.a.m. í vandræðum vegna bílaleigu á Spáni vinna íslenska og spænska ECC-stöðin saman að lausn málsins. Neytendasamtökin hýsa Evrópsku neytendaaðstoðina og það kostar ekkert að leita til hennar.

Neytendafréttir tengdar bílaleigum