Gjafabréf og inneignir
Gjafabréf eru vinsæl gjöf en því miður fá Neytendasamtökin á hverju ári mörg mál á sitt borð vegna gjafabréfa sem ekki nýtast. Ekkert í lögum eða reglum kveður skýrt á um lágmarksgildistími gjafabréfa eða inneignarnóta. Samkvæmt lögum er almennur fyrningarfrestur á kröfum fjögur ár, en seljandi getur sett hvaða gildistíma sem er á gjafabréfið svo framarlega sem hann kemur skýrt fram á bréfinu. Oftast er kvartað yfir því að seljandi leyfi viðskiptavininum ekki að nýta gjafabréf sem er útrunnið. Slíkir viðskiptahættir verða að teljast mjög sérstakir enda hefur seljandi ekki orðið fyrir neinum skaða, þvert á móti. Búið er að greiða fyrir ákveðna vöru eða þjónustu og í raun má því segja að neytandi veiti seljanda vaxtalaust lán.
Neytendasamtökin hafa tekið saman sanngjörn lágmarksviðmið um gjafabréf og inneignir sem verslanir geta stuðst við, þar sem engin lög gilda um það. Þetta eru lágmarksviðmið og takmarka ekki betri rétt samkvæmt skilmálum eða lögum. Mörg fyrirtæki veita betri rétt en hér kemur fram. Viðmið þessi taka til neytendakaupa, það er þegar einstaklingur kaupir vöru utan atvinnustarfsemi af fyrirtæki sem hefur atvinnu sína af sölunni. Aðrar reglur kunna að gilda við kaup fyrirtækja.
Lágmarksréttur Neytendasamtakanna vegna gjafabréfa og inneigna
-Þú mátt nota gjafabréf/inneignarnótu til að kaupa allar vörutegundir í öllum útibúum seljanda, nema annað sé skýrt tekið fram á gjafabréfinu/inneignarnótunni.
-Þú mátt nota gjafabréf/inneignarnótu án takmarkana, einnig á útsölu.
-Gjafabréf/inneignarnótur gilda í fjögur ár hið minnsta. Mörg fyrirtæki hafa engin tímamörk.
-Ef gildistíminn er takmarkaður á það að koma skýrt fram á afgreiðslustaðnum og í gjafabréfinu/á inneignarnótunni.
-Gjafabréf/inneignarnótur skal prenta þannig að þau varðveitist út gildistímann. Einnig skal skrá gjafabréf/inneignarnótu í tölvukerfi seljanda, skyldi eigandi týna útprentuðu eintaki sínu.
Langflestar verslanir gera sér grein fyrir mikilvægi þess að veita góða þjónustu. Þó er því miður ekki óalgengt að fólk lendi í vandræðum þegar það ætlar að nota gjafabréfin sín eða inneignir sínar. Neytendasamtökin vilja gjarna fá að vita ef fólk fær ekki að nota gjafabréf eða inneignir, en benda jafnframt á það góða ráð að nýta gjafabréf og inneignarnótur svo fljótt sem auðið er, því inneignin getur tapast hætti seljandi starfsemi.