Aðalfundur 2023
Aðalfundur Neytendasamtakanna verður haldinn laugardaginn 28. október í Guðrúnartúni 1. Fundurinn hefst kl. 10:00 og lýkur á hádegi.
Samkvæmt 11. gr. laga samtakanna eiga allir félagsmenn rétt til setu á aðalfundi séu þeir skuldlausir við samtökin viku fyrir aðalfund. Tilkynna þarf um þátttöku föstudaginn 20. október í síðasta lagi. Skráning fer fram í síma 545 1200 eða í gegnum netfangið ns@eldri.ns.is.
Kosning til stjórnar Neytendasamtakanna fer fram dagana 23. – 27. október. Kosningin er rafræn og hefst kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 23. október og lýkur kl. 12:00 föstudaginn 27. október. Niðurstaðan verður tilkynnt á aðalfundi samtakanna, sem fer fram laugardaginn 28. október.
Hvernig kýs ég?
Hér er hlekkur sem vísar þér á kosningakerfið. Þegar þú smellir á hlekkinn er þér vísað áfram á island.is, þar sem þú þarft að auðkenna þig með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Því næst geturðu greitt atkvæði. Samkvæmt lögum samtakanna hafa þeir félagsmenn rétt til að taka þátt í kjöri til stjórnar sem eru skuldlausir við samtökin viku fyrir aðalfund eða 20. október.
Sjö frambjóðendur í sex stjórnarsæti
Í Neytendasamtökunum er tólf manna stjórn, auk formanns. Kosið er um helming stjórnarinnar á hverju ári og um formann annað hvert ár. Kjörtímabil er tvö ár. Ekki er kosið um formann í ár.
Hægt er að skoða frambjóðendurna hér.
Gögn og upplýsingar
Hér að neðan eru fundargögn og frekari upplýsingar fyrir aðalfund Neytendasamtakanna 2023
- Ársreikningur Neytendasamtakanna 2022
- Frambjóðendur til stjórnar NS 2023-2025
- Kjör til stjórnar stendur frá 23. október til hádegis 27. október.
- Tillaga að skoðunarmönnum
- Tillaga að kjörnefnd
- Dagskrá aðalfundar
- Stefnumótun umræðuskjal